11.8.2009 | 21:17
HVAR ERU NÚ STÓRU LOFORÐIN HJÁ STEINA OG JÓU ??
Við íslendingar erum ekki búnir að gleyma orðum þeirra skötuhjúa um að skipa skuli fólk í embætti eftir hæfileikum en ekki pólitískum uppruna. Þetta hefur nú snúist upp í öndverðu sína og að sjá fréttir RÚV núna rétt áðan þar sem hver aflóga pólitíkusinn og flokksgæðingurinn er skipaður í stjórn Seðlabankans þrátt fyrir að nú sé þörfin fyrir fagfólk aldrei meiri en nú.
Þvílík skömm og hræsni hjá þessum skötuhjúum. Viðð höfum fengið nóg af getuleysi ykkar og lágkúrulegum lygum og óvönduðum vinnubrögðum. Viðurkennið að þið hafið gefist upp, hættið og felið öðrum stjórn á skútunni áður en ykkur tekst endanlega að sökkva henni.
Að lokum vil ég taka ofan hattinn fyrir Ögmundi en mér sýnist hann einn manna vera með réttu ráði í þessari ríkisstjórn og er vonandi að honum takist að koma vitinu fyrir Steina og Jóu á elliheimili.
Kaffisamsæti flokksgæðinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Um bloggið
Hilmar Heiðar Eiríksson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.