Hengjum ekki bakara fyrir smið !!!!!!!!!

Sú staðreynd að bankarnir tóku stöðu gegn Íslensku krónunni þýðir í raun að höfuðstólar allra lána hérlendis eru rangir og ber að leiðrétta þá hið fyrsta.  Skiptir þá ekki máli hvort um verðtryggt lán eða gengistryggt lán er að ræða og það eina rétta í stöðunni er að færa þetta allt til baka til 01,01,2008. 

Auðvitað leiddi þessi árás bakanna á krónuna til þess að verðbólgan fór af stað og taumlausar hækkanir urðu á verðlagi sem að síðan höfðu áhrif á verðtryggingu lána og höfuðstóla þeirra.  Sömu áhrif hafði þetta á erlendu lánin nema enn meiri.  Því er það engum örðum að kenna hvernig komið er en þessum bankaræningjum og því ber að leiðrétta þetta.

Við tökum ekki þátt í því að borga endalaust fyrir fjármagnseigendur afskrifir stórglæframanna og annarra glæpamanna.  Nú er tími til að standa upp og mótmæla því óréttlæti sem að við erum beitt því löngu er ljóst að þessi ríkisstjórn geri það ekki.


mbl.is Húsnæðislánin voru „tómt rugl"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta eru ekki afskriftir heldur leiðrétting á þjófnaði !!!!!!!!

Að sjálfsögðu á að leiðrétta höfuðstóla allra bílalána eins og allra annarra lána sem tekin voru í erlendri minnt.  Við verðum að hafa í huga að ekki er hér um afskriftir að ræða heldur eru lánveitendur að skila til baka þeim upphæðum sem þeir tóku ófrjálsri hendi. 

Það er ljóst að bankar og fjármálastofnanir tóku stöðu gegn krónunni og feldu gengið viljandi til að efnahagsreikningar þeirra litu betur út í ársfjórðungsuppgjörum.  Af þeim sökum eru höfuðstólar allra erlendra lána rangir og einnig höfuðstólar allra  verðtryggðra lána líka.  Þetta er staðreynd sem ekki verður hjá komist að lagfæra fyrir alla landsmenn.  Mér er alveg sama þótt að fjármálafyrirtækin og bankarnir fari á höfuðið, ekki vorkenni ég þeim, en að láta okkur landsmenn borga brúsann fyrir afskriftir fjárglæframanna og útrásarvíkinga er gjörningur sem að ég er ekki tilbúin til að taka þátt í.

Því tek ég ofan húfuna fyrir Árna og það er nokkuð sem að ég hefði trúað að ég gerði fyrir hann.

Áfram Árni nú ertu loks á réttri leið. 

 


mbl.is Lán dýrra bíla afskrifuð mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á þetta horfir vinstri stjórnin og brosir !!!!!!!!!!

Það er komið nóg af þessu svínaríi.  Þessi ríkisstjórn verður að hysja upp um sig buxurnar og skilda þessar fjármálastofnanir til leiðréttingar höfuðstóla fyrir alla lambsmenn, ekki fáa  útvalda, eða víkja ella.  Þessar aðgerðir sem bankarnir og ríkisstjórnin hafa boðið uppá eru ekkert annað en svik og prett og í raun, þegar upp er staðið, greiðir lántakandinn mun meira eftir breytingu en fyrir hana.

 

 


mbl.is Lánin færð yfir á hálfvirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er hægt að afskrifa fyrir erlenda braskara en ekki óbreytta borgara !!!!!!!

Hvað er í gangi með Kaupþing ?  Þeir virðast geta afskrifað skuldir á alla og allt nema fólkið í landinu.  Fer þessari vitleysu ekki að linna ? hvar er réttlætið ???
mbl.is 80% tóku tilboði Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað sleppa þessir heiðursmenn enn og aftur !

Þrátt fyrir að þessir glæpa gjörningar þessara manna hafi kostað heimilin í landinu hundruð miljóna og jafnvel miljarða og stuðlað að falli íslensku krónunnar má ekki snerta hár á höfði þessara sóma drengja.  Fjölskyldur þessa lands bera æ þyngri byrgðar og fleiri og fleiri bætast í þann hóp sem missir ævisparnað sinn í gapandi gin fjármálaskrímslisins.  Já það verður ljósara með hverjum deginum sem að líður að ekki eru allir jafnir fyrir þessum blessuðu lögum.

Réttast væri að birta nöfn þessara manna sem landráðamanna þannig að á þeim kvíi ævarandi skömm.

Hvar er réttlætið í þessu þjóðfélagi ?  er ekki komin tími til að standa upp og berjast gegn þessum óþverra sem virðist vera í hverju horni.


mbl.is Fá ekki að leggja hald á fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gylfi er ekki Hrói Höttur heldur fógetinn í Nottingham !!!!!

Þjóðfélagsumræðan er óvæginn seigir fógetinn frá Nottingham.  Hvernig getur fólk mótmælt því að bankarnir taki peninga frá hinum vinnandi manni og útdeili þeim til hinna ríku.  Hvernig er hægt að mótmæla því réttlæti að fjármagnseigendur og dugmiklir stjórnendur stórfyrirtækja fái niðurfelda miljarða á miljarða ofan og séu ráðnir áfram til að reka þessi fyrirtæki.  Hvernig er hægt að líta fram hjá því að þessir hæfu menn, sem tókst að koma þessum velreknu fyrirtækjum á höfuðið, séu manna hæfastir til að reka þau áfram.  Hvernig getur hinn vinnandi maður ætlast til að hann fái niðurfelda krónu á sama tíma og hann á að greiða miljarðana fyrir aumingja útrásarvíkingana sem verða líklega að greiða ofurskatta af öllum þeim miljörðum sem þeir fengu niðurfelda.  Nei fógetinn frá Nottingham getur alls ekki sett í okkar spor sem að eigum að borga brúsann.  Fyrir honum og hans hyski eru mótmæli almennings óvægin orð, frekja og yfirgangur gagnvart stjórnvöldum þessa lands.l

Húrra fyrir þessari frábæru ríkisstjórn, skattheimtu og óréttlætis gagnvart almennum borgurum þessa lands.


mbl.is Margt gott gert innan bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STELA JÓHANNA,ÁRNI OG STEINGRÍMUR JÓLUNUM ??

Nú þegar 783 fjölskyldur eru á leið undir hamarinn vaknar sú spurning hvort þau skötuhjú ætli að stela af þessum fjölskyldum jólunum.  Það skildi þó aldrei vera að þarna væru þau saman komin Grýla, Leppalúði og Jólakötturinn.  Aðgerðarpakki ríkisstjórnarinnar lætur standa á sér og skjaldborgin sem reisa átti fyrir heimilin og fyrirtækin er löngu fokinn út í veður og vind.

Á sama tíma dæla þau skötuhjúin gjöfum og glingri til fjármagnseigenda þessa lands.  Miljarðar á miljarða ofan eru afskrifaðir og sömu aðilum og komu okkur í þessi spor er gefin annað tækifæri til að endurtaka leikinn á meðan við launþegarnir borgum brúsann.  Svörin sem við fáum hjá þessu hyski er að við getum étið það sem úti frís.  Frestun á frestun ofan er það sem koma skal en höfuðstólar skulu ekki hreyfðir til að ársreikningar nýju bankanna líti sem best út. Hvað þá að það komi til greina að leiðrétta það okur sem við vorum beitt og þá svikamillu sem að við vorum plötuð í í líki erlendra lána af fjármálastofnunum sem að feldu gengið handvirkt sér til hagsbóta.

Það er ansi hart að Grýla, Leppalúði og Jólakötturinn skuli ekki sjá staðreyndir málsins og engu líkara en að þau þau beri  sífellt  kíkinn upp að blinda auganu.

 


ÞETTA ER HÆGT FYRIR STÓRLAXA EN EKKI HEIMILIN

Nú held ég að það sé komin tími til að standa saman og mótmæla því hrópandi óréttlæti sem ríkisstjórn þessa lands býður okkur uppá.  Miljarðar á miljarða ofan eru afskrifaðir af fyrirtækjum og góðborgurum þessa lands og þjóðin látin borga brúsann.   Lán eru niðurfeld hjá starfsmönnum bankanna og börnunum þeirra og er þetta enn ein skrautfjöðrin í þeirra hatt.  Eiga ekki foreldrar þessara barna að bera ábyrgð á því sem að þeir létu börnin sín gera og borga þessar skuldir sjálf sem að þeir komu þessum saklausu börnum í ?  ég er alla vegana ekki tilbúin til þess.  Hvað hefði nú gerst ef þessi bréf hefðu margfaldast að raunvirði hver hefði þá hirt ágóðan ? alla vegana ekki ég.  Þessu fólki er ekki viðbjargandi og það á að bera fulla ábyrgð á þessari græðgi í sér og skammast sín.  Vert er að hafa í huga að á bakvið flestar fjölskyldur eru líka börn sem að sannarlega finna fyrir því þegar foreldrar þeirra eru að missa allar sínar eigur í hendur fjárglæframanna en auðvitað er ekkert gert fyrir þau.

Á sama tíma fullyrðir Árni Páll  að ekki sé hægt að leiðrétta höfuðstóla fasteignalána fyrir einstaklinga.  Hvað ætli sé búið að afskrifa mörg hundruð miljarða á þessi stóru fyrirtæki á undanförnum mánuðum?  Hvernig getur maður eins og Árni horft framan í þjóðina og haldið þessu fram.  Það verður gaman að sjá hann á borgarafundinum í kvöld halda því fram að ekkert sé hægt að gera fyrir fólkið í landinu og að það verði að búa í skuldafangelsi það sem eftir er ævinnar.  Hann ætti að skammast sín fyrir það aðgerðarleysi sem einkennt hefur störf hans í þessu ráðuneyti. 

 


mbl.is Tugmilljarða afskriftir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagsmunir fjármagnseiganda yfir hagsmuni heimila og fyrirtækja !!!!!

Þetta er í raun staðreynd þessarar ríkisstjórnar sem að hér er við völd.  Það væri ekkert auðveldara fyrir hana en að setja um það lög að fjármagn sem flutt verði úr landi verði skattlagt svona eins og um 30 %.  Þetta myndi skila miklum tekjum í ríkissjóð og hindra að minnsta kosti hluta af útstreymi gjaldeyris út úr landinu. 

Eins er það stórundarlegt ef satt er að útgerðir og önnur íslensk fyrirtæki skuli ekki vera skikkuð til að skila inn þeim gjaldeyrir sem fyrir útflutning afurða þeirra fæst og er í raun ekkert annað en endurtekning á því sem hér var áður stundað til að halda gengi krónunnar sem lægstu.

Það er lámark að þau fyrirtæki sem að afnot hafa að náttúruauðlindum þjóðarinnar taki ekki stöðu gegn krónunni og því er eðlilegt að undanþágur frá gjaldeyrishöftunum verði afnumdar með hraði sem auðvitað myndi leiða til styrkingu krónunnar.


mbl.is Krónuskuld í gjaldeyrisskuld við AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafna afsökunarbeiðni Jóhönnu!

Það er stórundarlegt að skoða fyrsta frumvarp ríkisstjórnarinnar á þessu þingi og um hvað það fjallar.  Bann við nektardansi á Íslandi.  Eru nú ekki þarna önnur þarfari mál sem brýna er að leggja fram á alþingi heldur en þetta mál ?  Hvað með aðgerðirnar fyrir heimilin sem virðast alveg hafa tínst eftir að Árni lagði til að varpa hálfri þjóðinni í skuldafangelsi til æviloka.  Væri ekki nær að klára það mál í eitt skipti fyrir öll og snúa sér svo að öðrum málum.

Nei Jóhanna við tökum ekki afsökunarbeiðni þína til greina fyrr en þrælkunni hefur verið aflétt.


mbl.is Biður þjóðina afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Hilmar Heiðar Eiríksson

Höfundur

Hilmar Heiðar Eiríksson
Hilmar Heiðar Eiríksson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband